Mynd/mál: Námskeið í skapandi skrifum

Á námskeiðinu er samspil texta og mynda kannað með fjölbreyttum skrifæfingum þar sem forvitni og leikgleði eru höfð að leiðarljósi. Nemendur öðlast færni í að mynda hugrenningartengsl með ýmsum aðferðum þar sem hið ófyrirséða fær að njóta sín. Áherslan hvílir á samþættingu orða og mynda og þær margslungnu og litríku tengingar sem myndast þegar miðlarnir mætast á óvæntu stefnumóti.

Námskeiðið er byggt upp með innlögnum kennara, samræðum og æfingum sem skiptast á milli tíma. Kennari kynnir myndefni og texta jafnóðum sem verða kveikjur fyrir hvert verkefni sem ávallt er unnið á staðnum. Áhersla er lögð á ólíkar aðferðir og vinnubrögð við úrlausnir verkefna. Í lok námskeiðs vinna nemendur bókverk sem varpa ljósi á uppgötvanir tímabilsins.

Kennarinn er myndlistarmaður og rithöfundur, Haraldur Jónsson. Hann hefur um árabil leitt ritsmiðjur og námskeið í skapandi skrifum við Myndlistaskólann í Reykjavík, Listaháskóla Íslands og Háskóla Íslands.

Námskeiðið er í 8 vikur.

Frídagar: Ekki verður kennt á mánudaginn 26. október vegna vetrarfrís skólans.
Efniskaup: Nemendur eru beðnir að koma með skriffærin blýant eða penna.
Hámarksfjöldi nemenda: 12
Einingar: 1
Vetrarfrí skólans:

Vetrarfrí er frá og með 22. til og með 26. október.

Mars 172

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
N1012 12. október, 2026 – 7. desember, 2026 Mánudagur 12. október, 2026 7. desember, 2026 Mánudagur 17:45-21:00 Haraldur Jónsson 80.000 kr.