Módelteikning

Á þessu námskeiði verður lögð áhersla á grunnþætti módelteikningar: hlutföll, línu og form; sem og tengingu þessara grunnþátta við efni og tækni. Nemendur þjálfast í notkun á blýanti, kolum, bleki og fleiru. Sýnd verða dæmi úr listasögunni og úr myndskreyttum bókum.

Módeli verður stillt upp í mislangan tíma en það ræðst aðallega af efnisnotkun hverju sinni. Bæði verða teiknaðar lengri stöður og hraðskissur. Glímt er við hreyfingu í sumum verkefnum og birta og skuggi verða síðan í forgrunni teikningarinnar í öðrum verkefnum.

Kennslan er persónubundin og tekur mið af hæfni og þörfum hvers nemenda.

2 námskeið í boði og er hvert 6 vikur.

Efniskaup: Blýantar í mýktum 2H, HB, 2B, 4B og 6B og hnoðleður og strokleður.
Hámarksfjöldi nemenda: 12
Kennslustundir: 26
Einingar: 1
Ætlar að nota frístundastyrk?

ATH. Námskeið er of stutt til að uppfylla skilyrði frístundastyrks fyrir 18 ára og yngri.

MIR Evening Class 32

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
N0916 16. september, 2026 – 21. október, 2026 Miðvikudagur 16. september, 2026 21. október, 2026 Miðvikudagur 17:45-21:00 Halldór Baldursson 75.700 kr.
N1028 28. október, 2026 – 2. desember, 2026 Miðvikudagur 28. október, 2026 2. desember, 2026 Miðvikudagur 17:45-21:00 Halldór Baldursson 75.700 kr.