Realismi: listmálun

Námskeiðið kynnir fyrir nemendum mismunandi nálgun og tækni við olíumálun í realiskum anda.

Farið er yfir ýmsa grunntækni eins og íblöndunarefni (terpentínu og olíur, („fat over lean“ regla) litapallettu (æskilegir grunnlitir til að hafa) og litablandanir.

Undirmálverk og tilgangur þess, hvaða litir henta í það og mismunandi útgáfur af því. Skoðað hvernig maður heldur áfram með liti ofan á undirmálverk.

Hvernig hægt er að nýta akrýl-liti í undirmálverk til að byrja að byggja upp málverkið áður en skipt er yfir í olíu.

Mismunandi nálganir við að mála, „layer over layer“ (lag ofan á lag) á móti „alla prima“(blautt í blautt).

Mismunandi leiðir til að teikna viðfangsefni áður en byrjað er að mála, (teikna með kolum, blýanti eða „teikna“ beint með pensli og olíulit) og hvernig við getum notað grindaraðferð við flóknari teikningu. Ennfremur hvernig við getum fullklárað teikningu á blaði og fært svo yfir á striga.

Hvernig við vinnum út frá fyrirmynd t.d. við að gera flókið málverk gæti þurft að stilla hlutum upp til að vinna eftir og mögulega blanda saman við ljósmynd, meta hvað skiptir máli og hverju má sleppa, og jafnvel að hagnýta sér snjalltæki til að setja saman fyrirmyndina áður en málað er.

Verkefni námskeiðisins taka mið af því að kanna þessar mismunandi nálganir.


Námskeiðið er 12 vikur.

Frídagar: Ekki verður kennt á fimmtudaginn 22. október vegna vetrarfrís skólans.
Efniskaup: Nemendur koma með þau efni og áhöld sem þeir eiga og eru vanir að nota. Frekari efniskaup í samráði við kennara.
Hámarksfjöldi nemenda: 12
Kennslustundir: 52
Einingar: 2
Vetrarfrí skólans:

Vetrarfrí er frá og með 22. til og með 26. október.

IMG 2631 Original

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
N0917 17. september, 2026 – 10. desember, 2026 Þriðjudagur 17. september, 2026 10. desember, 2026 Þriðjudagur 17:45-21:00 Karl Jóhann Jónsson 135.000 kr.