Listmálun

Á námskeiðinu verður farið yfir undirstöðuatriði málunar með olíulitum. Nemendur verða kynntir fyrir ólíkum þáttum málunar, svo sem litafræði og myndbyggingu; landslagsmálverki, portrettmyndum, kyrralífi og abstrakt. Þeim verður kennt að meðhöndla íblöndunarefni, olíuliti og pensla. Auk þess verklega verða kynningar með dæmum úr listasögunni.

Við mælum með því að nemendur hafi lokið námskeiði í teikningu áður en farið er í málun.

Þó svo að um grunnnámskeið í olíumálun sé að ræða getur námskeiðið sannarlega gagnast lengra komnum. Þau verkefni sem lögð verða fyrir eru opin í annan endann og kennslan einstaklingsmiðuð.

2 námskeið í boði og er hvert 6 vikur.

Efniskaup: Nemendur skulu koma með það efni sem þeir eiga ef við á en frekari efniskaup verða gerð í samráði við kennara. Málunarpappír og íblöndunarefni eru innifalin í námskeiðisgjaldi.
Hámarksfjöldi nemenda: 12
Kennslustundir: 26
Einingar: 1
Ætlar að nota frístundastyrk?

ATH. Námskeið er of stutt til að uppfylla skilyrði frístundastyrks fyrir 18 ára og yngri.

Mynd 2

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
N0916 16. september, 2026 – 21. október, 2026 Miðvikudagur 16. september, 2026 21. október, 2026 Miðvikudagur 17:45-21:00 Kristinn G. Harðarson 70.700 kr.
N1028 28. október, 2026 – 2. desember, 2026 Miðvikudagur 28. október, 2026 2. desember, 2026 Miðvikudagur 17:45-21:00 Kristinn G. Harðarson 70.700 kr.