Leirmótun og skúlptúr

Markmið námskeiðsins Leirmótun og skúlptúr er að nemendur kynnist möguleikum leirs sem skúlptúrefnis. Áhersla verður lögð á skapandi vinnuferli og leikgleði, þar sem nemendur fá að vinna frjálslega með efnið og kanna möguleika þess. Unnið verður með margvísleg form, bæði geómetrísk og lífræn, og formskyn nemandans þannig þjálfað. Samsetning og samspil ólíkra hluta verður skoðað með tilliti til formgerðar.

Þær aðferðir sem notaðar eru til handmótunar eru að mestu þær sömu í dag og þær voru fyrir þúsundum ára: fingraaðferð, slönguaðferð og plötuaðferð. Nemendur námskeiðsins munu læra þessar aðferðir við vinnslu keramiks og munu samhliða því kynnast eiginleikum efnisins. Jafnframt verða þeim kenndar fjölbreyttar leiðir til meðhöndlunar á yfirborði leirsins.

Námskeiðið er 10 skipti.

Frídagar: Ekki verður kennt þriðjudaginn 31. mars vegna Páskafrís
Efniskaup: Allt leirefni innifalið í námskeiðisgjaldi. Áhöld verða til láns á staðnum.
Hámarksfjöldi nemenda: 12
Kennslustundir: 43
Einingar: 2
IMG 9468

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
N0915 15. september, 2026 – 17. nóvember, 2026 Þriðjudagur 15. september, 2026 17. nóvember, 2026 Þriðjudagur 17:45-21:00 Agnes Freyja Björnsdóttir 110.000 kr.