Leirrennsla

Á námskeiðinu er kennt á rafknúinn rennibekk. Áhersla er lögð á verkþjálfun en námið fer einnig fram með sýnikennslu. Hver nemandi fær rennibekk til afnota. Nemendur kynnast heildstæðu ferli þar sem farið er í forvinnu, samsetningar á renndum hlutum og afrennslu. Noktun glerunga verður kynnt fyrir nemendum og þeim leiðbeint um hvaða glerungar henti renndum hlutum best.

Við leggjum okkar fram við að skapa stemningu eins og um keramikverkstæði úti í bæ væri að ræða þar sem hver og einn nemandi vinnur að skipulögðum verkefnum í samráði við kennara. Lagt er upp úr því að nemendur fái tilfinningu fyrir leir sem efnivið og finni fyrir framförum á námskeiðistímanum.

Námskeiðið er 10 vikur. Kennslan fer fram á ensku.

Frídagar: Engin kennsla verður þessa mánudaga –
• 26. október vegna vetrarfrís skólans
• 23. nóvember vegna fjarveru kennara.
Efniskaup: Allt leirefni er innifalið í námskeiðisgjaldi. Verkfæri verða til láns á staðnum en nemendum er jafnframt frjálst að koma með eigin verkfæri.
Hámarksfjöldi nemenda: 11
Kennslustundir: 43
Einingar: 2
Vetrarfrí skólans:

Vetrarfrí er frá og með 22. til og með 26. október.

MIR Evening Class 52 1

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
N0914 14. september, 2026 – 30. nóvember, 2026 Mánudagur 14. september, 2026 30. nóvember, 2026 Mánudagur 17:45-21:00 Martina Priehodová 120.000 kr.