Kintsugi: japönsk viðgerðarlist

Á þessu 10 vikna námskeiði verður unnið með hefðbundin japönsk efni og aðferðir við gera við brotið leirtau með gulli. Farið verður yfir sögu og grunnaðferðir kintsugi og þátttakendur læra inn á náttúruleg efni og meðferð þeirra, ss. urushi lakk og ýmsa málma.

Innifalið í verði er byrjendasett með efnum og áhöldum.

Nemendur eru beðnir um að koma með að minnsta kosti tvo persónulega muni úr leir eða postulíni sem þarfnast viðgerðar og einn til tvo smáa viðarhluti, til dæmis skeið, smjörhníf eða annan einfaldan nytjahlut, sem lakkaður verður með urushi.

Hámarksfjöldi nemenda: 12
Kennslustundir: 35
Einingar: 1
Kintsugi 1

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Tímasetning Kennari Verð Skráning
N0923 23. september, 2026 – 25. nóvember, 2026 23. september, 2026 25. nóvember, 2026 18:00-20:00 Steinunn Knúts-Önnudóttir 85.000 kr.