Ullar þæfing er heillandi ferli sem umbreytir lausum náttúrulegum ullar trefjum í þétt og endingargott efni. Blautþæfing er aðferð þar sem ull, heitt vatn og sápa koma við sögu. Með því að rúlla, nudda eða hnoða ullina tengjum við trefjarnar saman í þétt og slétt efni. Nemendur kynnasta nálarþæfingu og læra að vinna með þæfingar-nál þar sem ullinni er þjappað saman og möguleiki á nálgast efnið á fjölbreyttan hátt. Þæfing er hrífandi og skapandi aðferð þar sem hægt er að vinna bæði með tvívíðan flöt líkt og málverkið og þrívíðan hlut á skúlptúrískan hátt.
Í fjórum tímum verður kennd blautþæfing með aðferð vatns, sápu og þurrkunar auk nálarinnar. Lagt verður fyrir 3 verkefni í vinnustofunni.
Kennari, Agata Mickiewicz er listamaður og fatahönnuður frá Póllandi. Hún útskrifaðist frá Listaakademíunni í Wrocław (Poland) og Gerrit Rietveld akademíunni í Amsterdam. Hún hefur unnið fyrir tískuhús eins og Viktor & Rolf og Iris van Herpen í Amsterdam og Rick Owens í París, auka kvikmynda og leikhússýninga. Undanfarin ár hefur hún kennt hönnun, myndlist og textíl í Póllandi, Aruba og á Íslandi. Á undanförnum árum hefur listsköpun hennar einkum beinst að textíllist, í blandi við vídeó, gjörninga og málverkið. Agata hefur verið búsett á Íslandi undanfarin þrjú ár og hefur sýnt verk sín víðsvegar um landið.
Kennsla fer fram jafnt á íslensku sem ensku, eftir þörfum nemenda og eðli viðfangsefna. Kennari hefur góða enskukunnáttu og skilning á íslensku.