Grunnþættir teikningar

Kennd eru undirstöðuatriði hlutateikningar: formgreining og skygging. Hlutateikning byggir á gegnsæisteikningu þar sem uppbygging hlutanna er skoðuð. Unnið er með blæbrigði línunnar, mismunandi áherslur og grátónaskala blýantsins.


Í byrjun námskeiðs eru frumformin teiknuð í samsíða vídd og form þeirra dregin fram með skyggingu. Kennd eru undirstöðuatriði í fjarvídd og rýmisteikningu. Á síðari hluta námskeiðsins er hlutfallamæling æfð. Teiknaðir verða einfaldir hlutir með áherslu á form og skyggingu (yfirfærsla á þrívíðum viðfangsefnum á tvívíðan flöt pappírsins). Fjallað er um myndbyggingu og kynntir eru ýmsir listamenn sem tengjast efninu hverju sinni.

Námskeiðið er 12 vikur.

Frídagar: Ekki verður kennt þessa mánudaga vegna Páskafrís
* 30. mars
* 6. apríl
Efniskaup: Blýantar í mýktum 2H, HB, 2B, 4B og 6B auk strokleðurs og hnoðleðurs.
Hámarksfjöldi nemenda: 12
Kennslustundir: 52
Einingar: 2
Páskafrí 2026:

Páskafrí er frá og með 30. mars til og með 6. apríl og engin kennsla fer fram þá daga.

MIR Evening Class 8

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
N0119 19. janúar, 2026 – 20. apríl, 2026 Mánudagur 19. janúar, 2026 20. apríl, 2026 Mánudagur 17:45-21:00 Karlotta J. Blöndal 132.000 kr.