Masterclass vinnustofa til að læra að búa til steypumót úr gifsi fyrir fljótandi postulín eða leir.
Hægt er að koma með eigin hugmynd af verki, hvort sem það er nytjahlutur eða skúlptúr eða fá hugmynd að verkefni hjá kennara.
Nemendur læra að blanda gifs, steypa gifs, nota gifsrennibekk, skafa gifs og skera út í gifs.
Skref á námskeiðinu:
- Kennari útskýrir ferlið
- Þáttakendur búa til master af sínu verki í gifs
- Mót er steypt utan um masterinn og það þurrkað
- Fljótandi postulín er blandað og hellt í mótið
- Lokafrágangur eftir að verkið kemur úr mótinu
- Kynning á niðurstöðum og umræður
Námskeiðið stendur yfir í 2 vikur, frá 26. febrúar til 8. mars. Kennt er á fimmtudögum og föstudögum frá 17:45 - 21:00 og laugardögum og sunnudögum frá 10:00 - 14:30. Kennslan fer fram á ensku.