Arkitektúr og hönnun

Á námskeiðinu eru tvívíð og þrívíð verkefni unnin frá hugmynd til útfærslu. Nemendur kynnast ýmsum aðferðum við myndbyggingu og velta fyrir sér stærð og hlutföllum, endurtekningu, takti og mynstri. Nemendur gera tilraunir í tilbúnu rými (líkani), skoða bæði geómetrísk og lífræn form og kanna samspil þeirra við aðra þætti. Hönnunarsagan verður skoðuð í tengslum við verkefnin og kannað verður hvernig unnið er með rými í samtímamyndlist, hönnun og arkitektúr. Námskeiðið hentar vel þeim sem hyggja á nám í hönnun eða arkitektúr.

12 vikna námskeið.

Frídagar: Ekki verður kennt þriðjudaginn 31. mars vegna Páskafrís.
Efniskaup: Allt efni sem þarf til þátttöku á námskeiðinu er innifalið í námskeiðisgjaldi en nemendum er frjálst að koma með þau efni og áhöld sem þeir eiga og eru vanir að nota, ef við á.
Hámarksfjöldi nemenda: 24
Kennslustundir: 52
Einingar: 2
Páskafrí 2026:

Páskafrí er frá og með 30. mars til og með 6. apríl og engin kennsla fer fram þá daga.

Form rymi honnun00

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
N0120 20. janúar, 2026 – 14. apríl, 2026 Þriðjudagur 20. janúar, 2026 14. apríl, 2026 Þriðjudagur 17:45-21:00 Bjarki Gunnar Halldórsson og Karitas Möller 136.000 kr.