Námskeið fyrir þá sem hafa gaman af því að teikna. Góð kvöldstund þar sem teikningin er ræktuð og við reynum að þróa tækni okkar áfram. Á námskeiðinu er lögð áhersla á mælingar og hlutföll, stefnur og staðsetningu hluta í rými. Teiknuð eru náttúruform og fjölbreytt form hluta. Með fríhendisteikningu er viðfangsefnið mótað með blæbrigðaríkri skyggingu og efnisáferð. Fjallað er um myndbyggingu og margvíslega birtingu teikningarinnar í gegnum listasöguna.
Námskeiðið er 6 vikur.