Grunnþættir teikningar

Kennd eru undirstöðuatriði hlutateikningar: formgreining og skygging. Hlutateikning byggir á gegnsæisteikningu þar sem uppbygging hlutanna er skoðuð. Unnið er með blæbrigði línunnar, mismunandi áherslur og grátónaskala blýantsins.

Í byrjun námskeiðs eru frumformin teiknuð í samsíða vídd og form þeirra dregin fram með skyggingu. Kennd eru undirstöðuatriði í fjarvídd og rýmisteikningu. Á síðari hluta námskeiðsins er hlutfallamæling æfð. Teiknaðir verða einfaldir hlutir með áherslu á form og skyggingu (yfirfærsla á þrívíðum viðfangsefnum á tvívíðan flöt pappírsins). Fjallað er um myndbyggingu og kynntir eru ýmsir listamenn sem tengjast efninu hverju sinni.

Námskeiðið er 12 vikur. Námslok miðast við 80% mætingu.

Efniskaup: Blýantar í mýktum 2H, HB, 2B, 4B og 6B auk strokleðurs og hnoðleðurs.
Hámarksfjöldi nemenda: 12
Kennslustundir: 52
Einingar: 2
MIR Evening Class 8

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
N0915 15. september, 2025 – 8. desember, 2025 Mánudagur 15. september, 2025 8. desember, 2025 Mánudagur 17:45-21:00 Karlotta J. Blöndal 123.000 kr.