Vatnslitun: Kyrralíf

Námskeiðið er tilvalið fyrir þá sem hafa einhver kynni af vatnslitun og hafa sótt grunnnámskeið í teikningu, svo sem námskeiðið Grunnþættir teikningar og/eða Teikning: Kyrralíf. Unnið verður með litasamsetningu og myndbyggingu. Ævintýralegir hlutir sem hafa fylgt skólanum í áratugi verða grandskoðaðir og yfirfærðir á pappír með vatnslit og nemendur þannig þjálfaðir upp í þeirri færni sem þeir þurfa að búa yfir til að geta fangað uppstillingu á pappír.

Efniskaup: Nemendur fá vatnslitapappír í fyrstu tveimur tímum námskeiðsins en þeim er síðan gert að kaupa pappír í samráði við kennara. Nemendur koma með eigin liti og er mikilvægt að þeir séu frá viðurkenndum merkjum.

Notast er við þessa liti eða aðra sambærilega: Lemon Yellow, Cadmium Yellow, Cadmium Red (eða annar hárauður til dæmis Winsor Red), Alizarin Crimson, Ultramarine blue, Winsor Blue (Green Hue), Permanent Sap Green, Yellow Ochre, Ivory Black. Ef nemendur eiga fleiri liti er gott að hafa þá meðferðis.

Mjög gott er að eiga marðarhárspensil nr. 8-14, Kolinski Sable, þar sem þeir halda miklu vatni/lit í sér. Annars má nota vatnslitapensla úr gerfiefnum sem kosta ekki jafn mikið. Ráðlagt er að eiga allavega tvo pensla (nr. 6 og nr. 12) og passa að þeir endi í oddi en ekki flatir. Fleiri penslastærðir er gott að hafa en ekki nauðsynlegt.
Hámarksfjöldi nemenda: 12
Kennslustundir: 26
Einingar: 1
Vatnslitun 00

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
N3010 30. október, 2025 – 4. desember, 2025 Fimmtudagur 30. október, 2025 4. desember, 2025 Fimmtudagur 17:45-21:00 Karlotta J. Blöndal 67.500 kr.