Á námskeiðinu eru tvívíð og þrívíð verkefni unnin frá hugmynd til útfærslu. Nemendur kynnast ýmsum aðferðum við myndbyggingu og velta fyrir sér stærð og hlutföllum, endurtekningu, takti og mynstri. Nemendur gera tilraunir í tilbúnu rými (líkani) og skoða bæði geómetrísk og lífræn form og kanna samspil þeirra við aðra þætti. Hönnunarsagan verður skoðuð í tengslum við verkefnin og kannað verður hvernig unnið er með rými í samtímamyndlist, hönnun og arkitektúr. Námskeiðið hentar vel þeim sem hyggja á nám í hönnun eða arkitektúr.
12 vikna námskeið. Námslok miðast við 80% mætingu. Kennslan fer fram á íslensku.