Ætlað nemendum með töluverða reynslu af málaralistinni sem geta eða vilja vinna sjálfstætt í listsköpun sinni en jafnframt eiga þess kost að leita leiðsagnar. Ekki eru lögð fyrir sérstök verkefni en kennari leiðbeinir nemendum í þeirra sjálfsprottnu viðfangsefnum. Viðvera kennara er jafnframt áætluð 50% af tímunum. Fjallað um tæknileg atriði s.s. liti og í blöndunarefni, grunna og fleira. Inn í kennsluna verða fléttuð dæmi og fróðleikur úr listasögunni eftir því sem við á.
Vinnustofan er 12 vikur. Námslok miðast við 80% mætingu.