InDesign og Photoshop

Námskeiðið er ætlað öllum sem vilja kynna sér möguleika hönnunar- og myndvinnsluforritanna InDesign og Photoshop. Farið verður yfir helstu möguleika jafnframt því sem nemendur leysa verkefni upp á eigin spýtur með aðstoð kennara. Reikna má með nokkuð jafnri áherslu á bæði forritin, þó ívið meiri á InDesign. Markmiðið er að eftir námskeiðið hafi nemendur fengið nægilega undirstöðuþekkingu til að takast á við tvívíð grafísk hönnunarverkefni s.s. bæklinga, plaköt, bækur ofl. með InDesign og hafi náð tökum á undirstöðuatriðum í myndvinnslu með Photoshop.

Tekið skal fram að ekki er eiginlegt tölvuver í skólanum en nemendur munu þar af leiðandi vinna í fartölvum, sínum eigin eða fartölvum í eigu skólans. Ef nemendur eiga fartölvur með forritunum InDesign og Photoshop eru þeir hvattir til að hafa þær með sér á námskeiðið.

Kennari: Magnús Valpur Pálsson. 6 vikna námskeið á tímabilinu 04.03.25.-01.04.25. Kennt verður á þriðjudagskvöldum kl. 17:45-21:00. Námslok miðast við 80% mætingu. Kennslan fer fram á íslensku.

Efniskaup: Allt efni sem þarf til þátttöku á námskeiðinu er innifalið í námskeiðisgjaldi en mælst er til þess að nemendur hafi með sér skissu- eða stílabók nema hvorttveggja sé.
Hámarksfjöldi nemenda: 10
Kennslustundir: 26
Einingar: 1
IMG 5488

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
N1031 4. mars, 2025 – 1. apríl, 2025 Þriðjudagur 4. mars, 2025 1. apríl, 2025 Þriðjudagur 17:45-21:00 Magnús Valur Pálsson 67.500 kr.