Kynntar eru ýmsar aðferðir við að búa til ferilmöppu á rafrænu formi. Kennt er á tölvuforritin InDesign og Photoshop þar sem lögð er áhersla á að nemendur öðlist færni í að setja upp myndir og texta í tölvu.
Farið er í allar helstu aðferðir við myndvinnslu og uppsetningu á myndum og texta sem nýtist við möppugerð. Einnig er kennt hvernig undirbúa á rafrænt skjal til útprentunar.
Á námskeiðinu er farið yfir öll undirstöðuatriði við gerð ferilmöppu, þar á meðal hvað helst skuli hafa í huga við val á efni í ferilmöppu, hver aðalatriðin séu og hvernig þau eru dregin fram. Nemendur koma með myndir af verkum til að setja upp í möppuna. Áhersla er lögð á að nemendur nái að útbúa heildstæða og persónulega möppu sem endurspeglar styrk og listræna sýn nemandans.
5 vikna námskeið á tímabilinu 06.03.25.-03.04.25. Kennt verður á fimmtudagskvöldum kl. 17:45-21:00 auk eins laugardags 08.03.25. kl. 10:15-13:30, þ.e. í sex skipti alls. Námslok miðast við 80% mætingu. Kennslan fer fram á íslensku.