Myndlist: Vinnustofa

Vinnustofan er hugsuð sérstaklega fyrir nemendur sem hafa útskrifast af starfsbrautum og fjölnámsbrautum framhaldsskólanna og þau sem þurfa góðan stuðning við þátttöku á námskeiðum.

Vinnustofan er annars vegar hugsuð sem sjálfstæð vinna undir handleiðslu kennara fyrir hóp sem á það sammerkt að hafa fengist töluvert við listiðkun og jafnvel mótað persónulegan stíl. Hins vegar er boðið upp á kennslu í tækni, efni og aðferðum fyrir nýja nemendur. Vinnustofan er því sérsniðin að þörfum hvers og eins og um leið hvatning til þáttakenda að halda listiðkun sinni áfram og víkka bæði áhugasvið sitt og færni í myndlist.

Kennarar: Berglind Erna Tryggvadóttir og Kristinn G. Harðarsoson. 8 vikna vinnustofa á tímabilinu 10.10.24.-05.12.24. Kennt verður á fimmtudagseftirmiðdögum kl. 12:30-15:00. ATH. Ekki verður kennt í vetrarleyfinu fimmtudaginn 24. október. Námslok miðast við 80% mætingu. Kennslan fer fram á íslensku.

Frídagar: Vetrarfrí 24.10.-28.10. að báðum dögum meðtöldum.
Efniskaup: Nemendur koma með þau efni og áhöld sem þeir eiga og eru vanir að nota. Frekari efniskaup í samráði við kennara.
Hámarksfjöldi nemenda: 14
Undanfari:

Hafa lokið starfsbraut eða fjölnámsbraut framhaldsskólanna.

31357832 1642492655804024 5290694560941342720 O

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
V1010 10. október, 2024 – 5. desember, 2024 Fimmtudagur 10. október, 2024 5. desember, 2024 Fimmtudagur 12:15-15:00 Berglind Erna Tryggvadóttir og Kristinn G. Harðarson 67.500 kr.