Módelteikning

Á þessu námskeiði verður lögð áhersla á grunnþætti módelteikningar: hlutföll, línu og form; sem og tengingu þessara grunnþátta við efni og tækni. Nemendur þjálfast í notkun á blýanti, kolum, bleki og fleiru. Sýnd verða dæmi úr listasögunni og úr myndskreyttum bókum.

Módeli verður stillt upp í mislangan tíma en það ræðst aðallega af efnisnotkun hverju sinni. Bæði verða teiknaðar lengri stöður og hraðskissur. Glímt er við hreyfingu í sumum verkefnum og birta og skuggi verða síðan í forgrunni teikningarinnar í öðrum verkefnum.

Kennslan er persónubundin og tekur mið af hæfni og þörfum hvers nemenda.

Kennari: Halldór Baldursson. 6 vikna námskeið á tímabilinu 31.10.24.-05.12.24. Kennt verður á fimmtudagskvöldum kl. 17:45-21:00. Námslok miðast við 80% mætingu. Kennslan fer fram á íslensku.

Efniskaup: Allt efni sem þarf til þátttöku á námskeiðinu er innifalið í námskeiðisgjaldi.
Hámarksfjöldi nemenda: 12
Kennslustundir: 26
Einingar: 1
IMG 9854 1

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
N1031 31. október, 2024 – 5. desember, 2024 Fimmtudagur 31. október, 2024 5. desember, 2024 Fimmtudagur 17:45-21:00 Halldór Baldursson 64.000 kr.