Málun: Vinnustofa

Vinnustofan er ætluð nemendum með töluverða reynslu af málaralist sem geta eða vilja vinna sjálfstætt í listsköpun sinni en jafnframt eiga þess kost að leita leiðsagnar. Ekki eru lögð fyrir sérstök verkefni en kennari leiðbeinir nemendum í þeirra sjálfsprottnu viðfangsefnum. Viðvera kennara er jafnframt áætluð 50% af tímunum. Fjallað verður um tæknileg atriði s.s. liti og íblöndunarefni, grunna og fleira. Inn í kennsluna verða fléttuð dæmi og fróðleikur úr listasögunni eftir því sem við á.

Kennari: Valgarður Gunnarsson. 8 vikna vinnustofa á tímabilinu 11.10.24.-06.12.24. Vinnustofan fer fram á föstudagseftirmiðdögum kl. 12:30-16:00. ATH. Skólinn verður lokaður í vetrarleyfinu föstudaginn 25. október. Námslok miðast við 80% mætingu. Kennslan fer fram á íslensku.

Frídagar: Vetrarfrí 24.10.-28.10. að báðum dögum meðtöldum.
Efniskaup: Nemendur koma með þau efni og áhöld sem þeir eiga og eru vanir að nota. Frekari efniskaup í samráði við kennara.
Hámarksfjöldi nemenda: 12
IMG 7914

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
V1011 11. október, 2024 – 6. desember, 2024 Föstudagur 11. október, 2024 6. desember, 2024 Föstudagur 12:45-16:00 Valgarður Gunnarsson 58.000 kr.