Grunnþættir málunar

Á námskeiðinu verður farið yfir undirstöðuatriði málunar með olíulitum. Nemendur verða kynntir fyrir ólíkum þáttum málunar, svo sem litafræði og myndbyggingu; landslagsmálverki, portrettmyndum, kyrralífi og abstrakt. Þeim verður kennt að meðhöndla íblöndunarefni, olíuliti og pensla. Auk þess verklega verða kynningar með dæmum úr listasögunni.

Þó svo að um grunnnámskeið í olíumálun sé að ræða getur námskeiðið sannarlega gagnast lengra komnum. Þau verkefni sem lögð verða fyrir eru opin í annan endann og kennslan einstaklingsmiðuð.

Kennari: Kristinn G. Harðarson. 8 vikna námskeið á tímabilinu 09.10.24.-27.11.24. Kennt verður á miðvikudagskvöldum kl. 17:45-21:00. Námslok miðast við 80% mætingu. Kennslan fer fram á íslensku.

Efniskaup: Nemendur skulu koma með það efni sem þeir eiga ef við á en frekari efniskaup verða gerð í samráði við kennara. Málunarpappír og íblöndunarefni eru innifalin í námskeiðisgjaldi.
Hámarksfjöldi nemenda: 12
Kennslustundir: 35
Einingar: 1
MIR Evening Class 46

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
N1009 9. október, 2024 – 27. nóvember, 2024 Miðvikudagur 9. október, 2024 27. nóvember, 2024 Miðvikudagur 17:45-21:00 Kristinn G. Harðarson 78.000 kr.