Leirrennsla

Á námskeiðinu er kennt á rafknúinn rennibekk. Áhersla er lögð á verkþjálfun en námið fer einnig fram með sýnikennslu. Hver nemandi fær rennibekk til afnota. Nemendur kynnast heildstæðu ferli þar sem farið er í forvinnu, samsetningar á renndum hlutum og afrennslu. Noktun glerunga verður kynnt fyrir nemendum og þeim leiðbeint um hvaða glerungar henti renndum hlutum best.

Við leggjum okkar fram við að skapa stemningu eins og um keramikverkstæði úti í bæ væri að ræða þar sem hver og einn nemandi vinnur að skipulögðum verkefnum í samráði við kennara. Lagt er upp úr því að nemendur fái tilfinningu fyrir leir sem efnivið og finni fyrir framförum á námskeiðistímanum.

Þrír námskeiðishópar í boði á mismunandi tímum vikunnar. Námskeiðin fara ýmist fram á mánudagskvöldum, þriðjudagskvöldum eða fimmtudagsmorgnum. Öll eru þau átta vikur að lengd. Námslok miðast við 80% mætingu.

Kennarar eru annars vegar Adrianna Stanczak og hins vegar Viktor Breki Óskarsson. Adrianna kennir á ensku en getur þó tjáð sig á íslensku. Viktor Breki kennir á íslensku. Vetrarfrí skólans verður frá 24. október til 28. október að báðum dögum meðtöldum. Þess vegna verður hvorki kennt fimmtudaginn 24. október (snertir hóp N1010) né mánudaginn 28. október (snertir hóp N1014).

Frídagar: Vetrarfrí 24.10.-28.10. að báðum dögum meðtöldum.
Efniskaup: Allt leirefni er innifalið í námskeiðisgjaldi. Verkfæri verða til láns á staðnum en nemendum er jafnframt frjálst að koma með eigin verkfæri.
Hámarksfjöldi nemenda: 11
Kennslustundir: 35
Einingar: 1
Fyrirkomulag:

Adrianna kennir á ensku en getur þó tjáð sig á íslensku. Viktor Breki kennir á íslensku.

MIR Evening Class 52 1

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
N1010-Morguntímar 10. október, 2024 – 5. desember, 2024 Fimmtudagur 10. október, 2024 5. desember, 2024 Fimmtudagur 09:00-12:15 Viktor Breki Óskarsson 78.000 kr.
N1014 14. október, 2024 – 9. desember, 2024 Mánudagur 14. október, 2024 9. desember, 2024 Mánudagur 17:45-21:00 Viktor Breki Óskarsson 84.000 kr.
N1015 15. október, 2024 – 3. desember, 2024 Þriðjudagur 15. október, 2024 3. desember, 2024 Þriðjudagur 17:45-21:00 Adrianna Stanczak 84.000 kr.