Arkitektúr og hönnun

Á námskeiðinu eru tvívíð og þrívíð verkefni unnin frá hugmynd til útfærslu. Nemendur kynnast ýmsum aðferðum við myndbyggingu og velta fyrir sér stærð og hlutföllum, endurtekningu, takti og mynstri. Nemendur gera tilraunir í tilbúnu rými (líkani) og skoða bæði geómetrísk og lífræn form og kanna samspil þeirra við aðra þætti. Hönnunarsagan verður skoðuð í tengslum við verkefnin og kannað verður hvernig unnið er með rými í samtímamyndlist, hönnun og arkitektúr. Námskeiðið hentar vel þeim sem hyggja á nám í hönnun eða arkitektúr.

Kennarar: Bjarki Gunnar Halldórsson og Karítas Möller. 8 vikna námskeið á tímabilinu 15.10.24.-03.12.24. Kennt verður á þriðjudagskvöldum kl. 17:45-21:00. Námslok miðast við 80% mætingu. Kennslan fer fram á íslensku.

Efniskaup: Allt efni sem þarf til þátttöku á námskeiðinu er innifalið í námskeiðisgjaldi en nemendum er frjálst að koma með þau efni og áhöld sem þeir eiga og eru vanir að nota, ef við á.
Hámarksfjöldi nemenda: 14
Kennslustundir: 35
Einingar: 1
Form rymi honnun00

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
N1015 15. október, 2024 – 3. desember, 2024 Þriðjudagur 15. október, 2024 3. desember, 2024 Þriðjudagur 17:45-21:00 Bjarki Gunnar Halldórsson og Karitas Möller 78.000 kr.