Módelteikning: Aflagalína

Á námskeiðinu Módelteikning: Aflagalína verður teiknað eftir módeli á fjölbreyttan og frjálslegan hátt. Námskeiðið nýtist best þeim sem hafa teiknað módel áður. Teiknað verður með kolablýöntum, tússi, bleki og öðrum áhöldum. Leiðbeinandi gefur hópnum í heild ákveðin fyrirmæli áður en hafist er handa við að teikna hverju sinni og opnar um leið á ný kynni við bæði mannslíkamann og teikninguna.

Sem fyrr segir, er námskeiðið sérstaklega ætlað þeim sem hafa teiknað módel áður og búa yfir grunnþekkingu í teikningu.


Styttra námskeið, þrjú skipti alls:

  • 30.05. fimmtudagur, kl. 16:00-19:00
  • 31.05. föstudagur, kl. 16:00-19:00
  • 01.06. laugardagur, kl. 16:00-19:00

Námslok miðast við 80% mætingu.

Efniskaup: Þátttakendur eru hvattir til að hafa með sér þau teikniáhöld sem þeir eru vanir að nota ásamt kolablýanti. Önnur áhöld og efniviður er innifalinn í námskeiðisgjöldum.
Hámarksfjöldi nemenda: 12
Sjonlist Mir 8

Hringbraut 121

Hópur Hefst Lýkur Tímasetning Kennari Verð Skráning
N0530 30. maí, 2024 – 1. júní, 2024 30. maí, 2024 1. júní, 2024 16:00-19:00 Kristín Gunnlaugsdóttir 37.500 kr.