Leirrennsla

Um er að ræða grunnnámskeið í leirrennslu þar sem kennt er á rafknúinn rennibekk. Áhersla er lögð á verkþjálfun en námið fer sömuleiðis fram með sýnikennslu. Hver nemandi fær til afnota rennibekk og vinnur að verkefnum sem eru skipulögð í samráði við kennara. Markmiðið er að færni nemenda til að renna styrkist eftir því sem á námskeiðið líður og að þeir verði farnir að geta rennt fyrirframákveðin form áður en námskeiðinu lýkur.

Nemendur kynnast heildstæðu ferli leirmunagerðar þar sem farið er í forvinnu, samsetningar á renndum hlutum og afrennslu, sem og glerjun renndra hluta. Námskeiðið er byggt upp með þarfir byrjenda í huga en er þó ekki síður ætlað lengra komnum. Kennslan er einstaklingsmiðuð. Lagt er upp úr því að á námskeiðinu skapist góður vinnuandi.

Kennsla fer fram kl. 09:00-12:15 yfir fjögurra vikna tímabil: 12.08.-02.09. Kennt á mánudögum allar fjórar vikurnar en á miðvikudögum fyrstu tvær vikurnar, í sex skipti alls. Námslok miðast við 80% mætingu. ATH. Kennslan fer fram á ensku en kennari námskeiðsins getur líka tjáð sig á íslensku. Verð: 73.500 kr.

Frídagar: Þjóðhátíðardagurinn 17. júní
Efniskaup: Allt leirefni er innifalið í námskeiðisgjöldum. Verkfæri verða til láns á staðnum en nemendum er jafnframt frjálst að koma með eigin verkfæri.
Hámarksfjöldi nemenda: 11 í hverjum námskeiðshóp
Kennslustundir: 24
Einingar: 1
IMG 0113

Hringbraut 121

Hópur Hefst Lýkur Tímasetning Kennari Verð Skráning
N0603 3. júní, 2024 – 24. júní, 2024 3. júní, 2024 24. júní, 2024 09:00-12:15 Viktor Breki Óskarsson 73.500 kr.
N0812 12. ágúst, 2024 – 2. september, 2024 12. ágúst, 2024 2. september, 2024 09:00-12:15 Adrianna Stańczak 73.500 kr.