10-12 ára: Manga teikning

Á námskeiðinu læra nemendur að teikna andlit, höfuð og líkama í stíl teiknimyndasagna og að byggja upp skemmtilegar og læsilegar myndasögur. Lögð er áhersla á að nemendur læri gott handbragð og tileinki sér aðferðafræði myndasagna. Kennslan er einstaklingsmiðuð og er því bæði sniðin að byrjendum og lengra komnum.

Námskeiðið er 12 vikur.

Frídagar: Ekki verður kennt þessa fimmtudaga
* 19. febrúar vegna vetrafrís
* 2. apríl vegna Páskafrís
Viðbótarkostnaður: 21.300 kr. viðbótargjald vegna lögheimilis utan Reykjavíkur.

Reykjavíkurborg styrkir starfsemi barna- og unglingadeildar. Stuðningurinn einskorðast við börn og ungmenni með lögheimili í Reykjavík. Börn og ungmenni búsett í öðrum sveitarfélögum greiða af þeim sökum 30% hærri námskeiðsgjöld en börn búsett í Reykjavík. Sú upphæð verður innheimt samhliða námskeiðsgjaldinu við innritun.

Sum önnur sveitarfélög hafa niðurgreitt námskeið fyrir börn og ungt fólk. Hafa þarf samband við viðkomandi sveitarfélag.

Mörg starfsgreina- og stéttarfélög niðurgreiða nám við skólann.
Efniskaup: Allt efni innifalið.
Hámarksfjöldi nemenda: 10
Kaffitími:

Ætlast er til að börnin hafi með sér einhvern léttan bita / hollt nesti, en fari ekki að kaupa í kaffitímanum. Athygli er vakin á því að Myndlistaskólinn er hnetufrír og því má ekki taka með sér nesti sem inniheldur hnetur.

Vetrafrí skólans og Páskafrí 2026:
  • Vetrarfrí er frá og með 19. febrúar til og með 21. febrúar.
  • Páskafrí er frá og með 30. mars til og með 6. apríl.
Manga1

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
1012107 15. janúar, 2026 – 16. apríl, 2026 Fimmtudagur 15. janúar, 2026 16. apríl, 2026 Fimmtudagur 15:00-17:15 Guðbrandur Magnússon 71.000 kr.