10-12 ára: Litur, lína og form

Námskeiðið er fjölbreytt og skapandi þar sem nemendur læra að teikna, mála og móta. Nemendur kynnast grunn atriðum myndlistar – eins og línu, litum, áferð og skugga – í gegnum spennandi verkefni þar sem þau fá að prófa sig áfram á sinn hátt. Unnið verður með bæði tvívíð og þrívíð verk. Einn af hápunktum námskeiðsins er gerð andlitsmyndar úr leir og fá nemendur þannig innsýn í form og hlutföll mannslíkamans.

Markmið námskeiðsins er að efla sköpunargleði og sjálfstraust til listsköpunar og stuðla að gleði og jákvæðri upplifun af myndlist.

Námskeiðið er 12 vikur.

Frídagar: Ekki verður kennt þann Þriðjudaginn 31.03. vegna Páskafis.
Viðbótarkostnaður: 21.300 kr. viðbótargjald vegna lögheimilis utan Reykjavíkur.

Reykjavíkurborg styrkir starfsemi barna- og unglingadeildar. Stuðningurinn einskorðast við börn og ungmenni með lögheimili í Reykjavík. Börn og ungmenni búsett í öðrum sveitarfélögum greiða af þeim sökum 30% hærri námskeiðsgjöld en börn búsett í Reykjavík. Sú upphæð verður innheimt samhliða námskeiðsgjaldinu við innritun.

Sum önnur sveitarfélög hafa niðurgreitt námskeið fyrir börn og ungt fólk. Hafa þarf samband við viðkomandi sveitarfélag.

Mörg starfsgreina- og stéttarfélög niðurgreiða nám við skólann.
Efniskaup: Allt efni innifalið.
Hámarksfjöldi nemenda: 10
Kaffitími:

Ætlast er til að börnin hafi með sér einhvern léttan bita / hollt nesti, en fari ekki að kaupa í kaffitímanum. Athygli er vakin á því að Myndlistaskólinn er hnetufrír og því má ekki taka með sér nesti sem inniheldur hnetur.

Páskafrí 2026:

Páskafrí er frá og með 30. mars til og með 6. apríl.

Namskeid barna22 02716

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
1012104 20. janúar, 2026 – 14. apríl, 2026 Þriðjudagur 20. janúar, 2026 14. apríl, 2026 Þriðjudagur 15:00-17:15 Guðrún Vera Hjartardóttir 71.000 kr.