Á þessu lifandi og skapandi námskeiði eru unnin fjölbreytt verkefni með áherslu á skapandi hugsun, persónulega tjáningu og á að þroska vinnubrögð einstaklingsins. Mismunandi miðlar eru teknir fyrir og nemendur fá að kynnast mismunandi efnum. Unnin verða tvívíddar og þrívíddar verk þar sem áhersla verður lögð á grundvallaratriði sjónlista; form, liti, áferð og lýsingu.
Markmið námskeiðsins er að efla sköpunargleði og sjálfstraust til listsköpunar og stuðla að gleði og jákvæðri upplifun af myndlist.
6 námskeiðshópar og 12 vikur hver.