6-9 ára: Leirmótun

Á námskeiðinu er lögð áhersla á að nemendur læri helstu aðferðir við handmótun leirs og vinni ýmis skemmtileg verkefni tengd því og öðlist þannig skilning á ferli leirsins frá mótunar til brennslu.

Nemendur munu þjálfast í sjónrænni athygli og þroska almenn vinnubrögð og fá tilfinningu fyrir formi og efni. Markmið námskeiðsins er að efla sköpunargleði og sjálfstraust til listsköpunar og stuðla að gleði og jákvæðri upplifun af myndlist og handverki.

Námskeiðið er 12 vikur.

Viðbótarkostnaður: 18.600 kr. viðbótargjald vegna lögheimilis utan Reykjavíkur.

Reykjavíkurborg styrkir starfsemi barna- og unglingadeildar. Stuðningurinn einskorðast við börn og ungmenni með lögheimili í Reykjavík. Börn og ungmenni búsett í öðrum sveitarfélögum greiða af þeim sökum 30% hærri námskeiðsgjöld en börn búsett í Reykjavík. Sú upphæð verður innheimt samhliða námskeiðsgjaldinu við innritun.

Sum önnur sveitarfélög hafa niðurgreitt námskeið fyrir börn og ungt fólk. Hafa þarf samband við viðkomandi sveitarfélag.

Mörg starfsgreina- og stéttarfélög niðurgreiða nám við skólann.
Efniskaup: Allt efni innifalið.
Hámarksfjöldi nemenda: 8
Kaffitími:

Ætlast er til að börnin hafi með sér einhvern léttan bita / hollt nesti, en fari ekki að kaupa í kaffitímanum. Athygli er vakin á því að Myndlistaskólinn er hnetufrír og því má ekki taka með sér nesti sem inniheldur hnetur.

MYNDL RVK 22 NAMSKEID 02526

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
69102 11. september, 2025 – 27. nóvember, 2025 Fimmtudagur 11. september, 2025 27. nóvember, 2025 Fimmtudagur 15:15-17:00 Tara Njála Ingvarsdóttir 62.000 kr.