13-16 ára: Teikning og blönduð tækni

Á þessu fjölbreytta námskeiði er unnið með ýmsar ólíkar aðferðir í teikningu og málun og gerðar tilraunir með blandaða tækni. Verkefnin sem lögð eru fyrir byggja á grundvallaratriðum sjónlista í tvívídd og þrívídd; formi, lit, áferð, ljósi og skugga. Áhersla er lögð á að veita nemendum svigrúm til tilrauna, virkja áhugasvið þeirra og sköpunargleði. Markmið námskeiðsins er að efla sköpunargleði og sjálfstraust til listsköpunar og stuðla að gleði og jákvæðri upplifun af myndlist.

Námskeiðið er 12 vikur.

Viðbótarkostnaður: 20.700 kr. viðbótargjald vegna lögheimilis utan Reykjavíkur.

Reykjavíkurborg styrkir starfsemi barna- og unglingadeildar. Stuðningurinn einskorðast við börn og ungmenni með lögheimili í Reykjavík. Börn og ungmenni búsett í öðrum sveitarfélögum greiða af þeim sökum 30% hærri námskeiðsgjöld en börn búsett í Reykjavík. Sú upphæð verður innheimt samhliða námskeiðsgjaldinu við innritun.

Sum önnur sveitarfélög hafa niðurgreitt námskeið fyrir börn og ungt fólk. Hafa þarf samband við viðkomandi sveitarfélag.

Mörg starfsgreina- og stéttarfélög niðurgreiða nám við skólann.
Efniskaup: Allt efni innifalið.
Hámarksfjöldi nemenda: 12
Kaffitími:

Ætlast er til að börnin hafi með sér einhvern léttan bita / hollt nesti, en fari ekki að kaupa í kaffitímanum. Athygli er vakin á því að Myndlistaskólinn er hnetufrír og því má ekki taka með sér nesti sem inniheldur hnetur.

13 16 Fríða María

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
1316103 10. september, 2025 – 26. nóvember, 2025 Miðvikudagur 10. september, 2025 26. nóvember, 2025 Miðvikudagur 17:30-19:55 Lovísa Lóa Sigurðardóttir 69.000 kr.