13-16 ára: Manga teikning

Á námskeiðinu læra nemendur að þróa persónu frá hugmynd í fullunnið verk. Nemendur þjálfast í að teikna persónu frá mismunandi sjónarhornum, í mismunandi stellingum, rýmum og tjá svipbrigði þeirra. Lögð er áhersla á „Manga“ teiknistílinn, mismunandi einkenni hans og mikilvægi persónusköpunar.

Lögð er áhersla á að nemendur læri gott handbragð og tileinki sér aðferðafræði myndasagna. Kennslan er einstaklingsmiðuð og er því bæði sniðin að byrjendum og lengra komnum.

Námskeiðið er 12 vikur.

Viðbótarkostnaður: 20.700 kr. viðbótargjald vegna lögheimilis utan Reykjavíkur.

Reykjavíkurborg styrkir starfsemi barna- og unglingadeildar. Stuðningurinn einskorðast við börn og ungmenni með lögheimili í Reykjavík. Börn og ungmenni búsett í öðrum sveitarfélögum greiða af þeim sökum 30% hærri námskeiðsgjöld en börn búsett í Reykjavík. Sú upphæð verður innheimt samhliða námskeiðsgjaldinu við innritun.

Sum önnur sveitarfélög hafa niðurgreitt námskeið fyrir börn og ungt fólk. Hafa þarf samband við viðkomandi sveitarfélag.

Mörg starfsgreina- og stéttarfélög niðurgreiða nám við skólann.
Efniskaup: Allt efni innifalið.
Hámarksfjöldi nemenda: 20
Kaffitími:

Ætlast er til að börnin hafi með sér einhvern léttan bita / hollt nesti, en fari ekki að kaupa í kaffitímanum. Athygli er vakin á því að Myndlistaskólinn er hnetufrír og því má ekki taka með sér nesti sem inniheldur hnetur.

MYNDL RVK 22 NAMSKEID 02642

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
1316104 11. september, 2025 – 27. nóvember, 2025 Fimmtudagur 11. september, 2025 27. nóvember, 2025 Fimmtudagur 17:30-19:55 Dagur Pétursson Pinos og Guðbrandur Magnússon 69.000 kr.