Námskeiðið er fjölbreytt og skapandi þar sem nemendur læra að teikna, mála og móta. Nemendur kynnast grunn atriðum myndlistar – eins og línu, litum, áferð og skugga – í gegnum spennandi verkefni þar sem þau fá að prófa sig áfram á sinn hátt.
Unnið verður með bæði tvívíð og þrívíð verk. Einn af hápunktum námskeiðsins er gerð andlitsmyndar úr leir og fá nemendur þannig innsýn í form og hlutföll mannslíkamans. Markmið námskeiðsins er að efla sköpunargleði og sjálfstraust til listsköpunar og stuðla að gleði og jákvæðri upplifun af myndlist.
Námskeiðið er 12 vikur.