10-12 ára: Myndasögur

Á námskeiðinu læra nemendur að teikna andlit, höfuð og líkama í stíl teiknimyndasagna og að byggja upp skemmtilegar og læsilegar myndasögur. Lögð er áhersla á að nemendur læri gott handbragð og tileinki sér aðferðafræði myndasagna.

Kennslan er einstaklingsmiðuð og er því bæði sniðin að byrjendum og lengra komnum.

Námskeiðið er 12 vikur.

Viðbótarkostnaður: 20.400 kr. viðbótargjald vegna lögheimilis utan Reykjavíkur.

Reykjavíkurborg styrkir starfsemi barna- og unglingadeildar. Stuðningurinn einskorðast við börn og ungmenni með lögheimili í Reykjavík. Börn og ungmenni búsett í öðrum sveitarfélögum greiða af þeim sökum 30% hærri námskeiðsgjöld en börn búsett í Reykjavík. Sú upphæð verður innheimt samhliða námskeiðsgjaldinu við innritun.

Sum önnur sveitarfélög hafa niðurgreitt námskeið fyrir börn og ungt fólk. Hafa þarf samband við viðkomandi sveitarfélag.

Mörg starfsgreina- og stéttarfélög niðurgreiða nám við skólann.
Efniskaup: Allt efni innifalið.
Hámarksfjöldi nemenda: 10
Kaffitími:

Ætlast er til að börnin hafi með sér einhvern léttan bita / hollt nesti, en fari ekki að kaupa í kaffitímanum. Athygli er vakin á því að Myndlistaskólinn er hnetufrír og því má ekki taka með sér nesti sem inniheldur hnetur.

Myndasogur

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
1012104 10. september, 2025 – 26. nóvember, 2025 Miðvikudagur 10. september, 2025 26. nóvember, 2025 Miðvikudagur 15:00-17:15 Dagur Pétursson Pinos og Guðbrandur Magnússon 68.000 kr.