6-9 ára: Leirmótun

Á námskeiðinu er farið í gegnum helstu aðferðir við leirmótun og nemendur fá að kynnast efninu og verkfærum. Nemendur munu útbúa ævintýralega hluti í fjölbreyttum verkefnum og takast á við grundvallaratriði sjónlista, formi, lit, ljósi og skugga.

Markmiðið er að þjálfa sjónræna athygli, örva skapandi hugsun og persónulega tjáningu, jafnframt því að þroska almenn vinnubrögð og tilfinningu fyrir efninu.

Námskeiðið er 12 vikur.

Viðbótarkostnaður: 18.600 kr. viðbótargjald vegna lögheimilis utan Reykjavíkur.

Reykjavíkurborg styrkir starfsemi barna- og unglingadeildar. Stuðningurinn einskorðast við börn og ungmenni með lögheimili í Reykjavík. Börn og ungmenni búsett í öðrum sveitarfélögum greiða af þeim sökum 30% hærri námskeiðsgjöld en börn búsett í Reykjavík. Sú upphæð verður innheimt samhliða námskeiðsgjaldinu við innritun.

Sum önnur sveitarfélög hafa niðurgreitt námskeið fyrir börn og ungt fólk. Hafa þarf samband við viðkomandi sveitarfélag.

Mörg starfsgreina- og stéttarfélög niðurgreiða nám við skólann.
Efniskaup: Allt efni innifalið.
Hámarksfjöldi nemenda: 8
Kaffitími:

Ætlast er til að börnin hafi með sér einhvern léttan bita / hollt nesti, en fari ekki að kaupa í kaffitímanum. Athygli er vakin á því að Myndlistaskólinn er hnetufrír og því má ekki taka með sér nesti sem inniheldur hnetur.

Engin kennsla verður á þessum fimmtudögum:

* 17. apríl vegna páskafrís
* 24. apríl vegna sumardagsins fyrsta
* 01. maí vegna verkalýðsdagsins

MYNDL RVK 22 NAMSKEID 02526

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
69103 6. febrúar, 2025 – 15. maí, 2025 Fimmtudagur 6. febrúar, 2025 15. maí, 2025 Fimmtudagur 15:15-17:00 Tara Njála Ingvarsdóttir 62.000 kr.