Á þessu námskeiði sem ætlað er 10-12 ára nemendum, veltum við fyrir okkur fortíð, nútíð og framtíð í samhengi við sýninguna „Heimur í orðum“ og færum framandi hugtök nær okkur sjálfum í gegnum ævintýri sköpunar. „Heimur í orðum“ er glæsileg sýning Árnastofnunar í Eddu á íslensku handritunum sem geyma ómetanlegan menningararf okkar. Nánar um sýningu hér: Heimur í orðum
Á námskeiðinu vinna nemendur með fjölbreyttan efnivið og aðferðir og kynnast gömlum handverkshefðum af ýmsu tagi. Þau kynnast töfrum jarðefna og hvaðan efniviðurinn kemur, búa til bækur, liti og verkfæri til eigin listsköpunar. Verkefnin sem lögð verða fyrir byggja á grundvallaratriðum sjónlista, s.s. línu, lit, áferð, ljósi og skugga og vinna verkefni í tvívídd og þrívídd. Áhersla verður lögð á svigrúm til tilrauna og rými fyrir eigin uppgötvanir nemenda og frjálst flæði.Námskeiðið stendur yfir í 10 vikur.