6-9 ára: Myndlist og bókagerð

Á námskeiðinu skoðum við ólíkar gerðir bóka, pop up bækur, fansínur og bókverk sem eru listaverk. Við rannsökum og umbreytum hugmyndum okkar af bókarforminu á leikin hátt þar sem eitt leiðir að öðru og raðast upp í persónulegt bókverk.

Við skoðum ólíkan efnivið til bókagerðar eins og pappír, speglapappír, málmfólíur og gagnsæjar litafólíur, veljum það sem gefur okkur innblástur og látum innblásturinn leiða okkur áfram.

Námskeiðið er 12 vikur.

Viðbótarkostnaður: 17.700 kr. viðbótargjald vegna lögheimilis utan Reykjavíkur.

Reykjavíkurborg styrkir starfsemi barna- og unglingadeildar. Stuðningurinn einskorðast við börn og ungmenni með lögheimili í Reykjavík. Börn og ungmenni búsett í öðrum sveitarfélögum greiða af þeim sökum 30% hærri námskeiðsgjöld en börn búsett í Reykjavík. Sú upphæð er innheimt sérstaklega.

Sum önnur sveitarfélög hafa niðurgreitt námskeið fyrir börn og ungt fólk. Hafa þarf samband við viðkomandi sveitarfélag.

Mörg starfsgreina- og stéttarfélög niðurgreiða nám við skólann.
Efniskaup: Allt efni innifalið.
Hámarksfjöldi nemenda: 8
Kaffitími:

Ætlast er til að börnin hafi með sér einhvern léttan bita / hollt nesti, en fari ekki að kaupa í kaffitímanum. Athygli er vakin á því að Myndlistaskólinn er hnetufrír og því má ekki taka með sér nesti sem inniheldur hnetur.

Vetrafrí skólans frá og með 24.10. til og með 28.10.:

Ekki verður kennt þann fostudaginn 25. október.

Jólafrí:

Ekki verður kennt frá og með 08.12.2024 til og með 05.01.2025.

MYNDL RVK 22 NAMSKEID 02456

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
69104 11. október, 2024 – 31. janúar, 2025 Föstudagur 11. október, 2024 31. janúar, 2025 Föstudagur 15:15-17:00 Guðrún Benónýsdóttir 59.000 kr.