4-5 ára: Myndlist

Á námskeiðinu eru unnin fjölbreytt verkefni með áherslu á skapandi hugsun, persónulega tjáningu og á að þroska vinnubrögð einstaklingsins. Mismunandi miðlar eru teknir fyrir og nemendur fá að kynnast ólíkum efnum. Unnin verða tvívíddar og þrívíddar verk þar sem áhersla verður lögð á grundvallaratriði sjónlista; form, liti, áferð og lýsingu.

2 námskeið í boði og er hvert námskeið 12 vikur.

Viðbótarkostnaður: 17.700 kr. viðbótargjald vegna lögheimilis utan Reykjavíkur.

Reykjavíkurborg styrkir starfsemi barna- og unglingadeildar. Stuðningurinn einskorðast við börn og ungmenni með lögheimili í Reykjavík. Börn og ungmenni búsett í öðrum sveitarfélögum greiða af þeim sökum 30% hærri námskeiðsgjöld en börn búsett í Reykjavík. Sú upphæð er innheimt sérstaklega.

Sum önnur sveitarfélög hafa niðurgreitt námskeið fyrir börn og ungt fólk. Hafa þarf samband við viðkomandi sveitarfélag.

Mörg starfsgreina- og stéttarfélög niðurgreiða nám við skólann.
Efniskaup: Allt efni innifalið.
Hámarksfjöldi nemenda: 6 í hverjum hóp
Kaffitími:

Ætlast er til að börnin hafi með sér einhvern léttan bita / hollt nesti, en fari ekki að kaupa í kaffitímanum. Athygli er vakin á því að Myndlistaskólinn er hnetufrír og því má ekki taka með sér nesti sem inniheldur hnetur.

Foreldrar og forráðamenn athugið:

Brýnt er að aðstandendur skilji börnin ekki eftir ein í skólanum áður en kennsla hefst og sæki börnin um leið og kennslu lýkur. Ef börnin eru ekki fær um að fara ein á salernið þurfa aðstandendur að vera á staðnum til að aðstoða þau.

Vetrafrí skólans frá og með 24.10. til og með 28.10.:

Ekki verður kennt þann laugardaginn 26. október.

Jólafrí:

Ekki verður kennt frá og með 08.12.2024 til og með 05.01.2025.

IMG 8116

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
45101 12. október, 2024 – 1. febrúar, 2025 Laugardagur 12. október, 2024 1. febrúar, 2025 Laugardagur 10:15-12:00 Berglind Erna Tryggvadóttir og Tara Njála Ingvarsdóttir 59.000 kr.
45102 12. október, 2024 – 1. febrúar, 2025 Laugardagur 12. október, 2024 1. febrúar, 2025 Laugardagur 12:45-14:30 Berglind Erna Tryggvadóttir og Tara Njála Ingvarsdóttir 59.000 kr.