13-16 ára: Teikning og blönduð tækni

Á námskeiðinu er unnið með ýmsar ólíkar aðferðir í teikningu og málun og gerðar tilraunir með blandaða tækni. Verkefnin sem lögð eru fyrir byggja á grunnatriðum sjónlista í tvívídd og þrívídd; formi, lit, áferð, ljósi og skugga. Áhersla er lögð á að veita nemendum svigrúm til tilrauna, virkja áhugasvið þeirra og sköpunargleði. Jafnframt er listasagan skoðuð til að auka skilning á þróun myndlistar og til innblásturs.

Námskeiðið er 12 vikur.

Viðbótarkostnaður: 20.700 kr. viðbótargjald vegna lögheimilis utan Reykjavíkur.

Reykjavíkurborg styrkir starfsemi barna- og unglingadeildar. Stuðningurinn einskorðast við börn og ungmenni með lögheimili í Reykjavík. Börn og ungmenni búsett í öðrum sveitarfélögum greiða af þeim sökum 30% hærri námskeiðsgjöld en börn búsett í Reykjavík. Sú upphæð verður innheimt samhliða námskeiðsgjaldinu við innritun.

Sum önnur sveitarfélög hafa niðurgreitt námskeið fyrir börn og ungt fólk. Hafa þarf samband við viðkomandi sveitarfélag.

Mörg starfsgreina- og stéttarfélög niðurgreiða nám við skólann.
Efniskaup: Allt efni innifalið.
Hámarksfjöldi nemenda: 12
Kaffitími:

Ætlast er til að börnin hafi með sér einhvern léttan bita / hollt nesti, en fari ekki að kaupa í kaffitímanum. Athygli er vakin á því að Myndlistaskólinn er hnetufrír og því má ekki taka með sér nesti sem inniheldur hnetur.

Jólafrí:

Ekki verður kennt frá og með 08.12.2024 til og með 05.01.2025.

13 16 Fríða María

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
1316103 9. október, 2024 – 22. janúar, 2025 Miðvikudagur 9. október, 2024 22. janúar, 2025 Miðvikudagur 17:30-19:55 Lovísa Lóa Sigurðardóttir 69.000 kr.