13-16 ára: Leirrennsla og mótun

Á námskeiðinu þjálfast nemendur í rennslu og mótun leirs. Nemendur munu renna nytjahluti ásamt því að gera óhlutbundnar tilraunir. Markmiðið er að þjálfa sjónræna athygli, örva skapandi hugsun og persónulega tjáningu, jafnframt því að þroska almenn vinnubrögð og tilfinningu fyrir formi og efni. Leitast er við að kveikja áhuga á myndgerð og formhugsun í víðara samhengi, m.a. gegnum listasögu.

Námskeiðið er 12 vikur.

Viðbótarkostnaður: 20.700 kr. viðbótargjald vegna lögheimilis utan Reykjavíkur.

Reykjavíkurborg styrkir starfsemi barna- og unglingadeildar. Stuðningurinn einskorðast við börn og ungmenni með lögheimili í Reykjavík. Börn og ungmenni búsett í öðrum sveitarfélögum greiða af þeim sökum 30% hærri námskeiðsgjöld en börn búsett í Reykjavík. Sú upphæð verður innheimt samhliða námskeiðsgjaldinu við innritun.

Sum önnur sveitarfélög hafa niðurgreitt námskeið fyrir börn og ungt fólk. Hafa þarf samband við viðkomandi sveitarfélag.

Mörg starfsgreina- og stéttarfélög niðurgreiða nám við skólann.
Efniskaup: Allt efni innifalið.
Hámarksfjöldi nemenda: 12
Kaffitími:

Ætlast er til að börnin hafi með sér einhvern léttan bita / hollt nesti, en fari ekki að kaupa í kaffitímanum. Athygli er vakin á því að Myndlistaskólinn er hnetufrír og því má ekki taka með sér nesti sem inniheldur hnetur.

Vetrafrí skólans frá og með 24.10. til og með 28.10.:

Ekki verður kennt þann föstudaginn 25. október.

Jólafrí:

Ekki verður kennt frá og með 08.12.2024 til og með 05.01.2025.

Verkst 39

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
1316105 11. október, 2024 – 31. janúar, 2025 Föstudagur 11. október, 2024 31. janúar, 2025 Föstudagur 15:15-17:40 Ragnheiður I. Margeirsdóttir. 69.000 kr.