10-12 ára: Myndasögur og Manga

Á þessu námskeiði læra nemendur að teikna myndasögur. Farið verður yfir grunnatriði í teikningu persóna og bakgrunna og fjallað um hvernig myndasögur eru uppbyggðar. Lögð er áhersla á frelsi nemandans til að skapa myndasögu sem hentar þeirra áhugasviði, t.d í japönskum mangastíl eða hefðbundnari teiknimyndastíl. Þegar námskeiðinu lýkur ætti nemandinn að hafa lokið við tveggja til þriggja blaðsíðna langa myndasögu, litað hana og lokið við með blekpenna.

Námskeiðið hentar fyrir byrjendur sem og lengra komna.

Efniskaup: Allt efni innifalið.
Hámarksfjöldi nemenda: 20
Kaffitími:

Ætlast er til að börnin hafi með sér einhvern léttan bita / hollt nesti, en fari ekki að kaupa í kaffitímanum. Athygli er vakin á því að Myndlistaskólinn er hnetufrír og því má ekki taka með sér nesti sem inniheldur hnetur.

Skólafrí:

Þjóðhátíðardagurinn 17. júní

10 12 ara Myndasogur og myndraenar frasagnir copy

Hringbraut 121

Hópur Hefst Lýkur Tímasetning Kennari Verð Skráning
1012MA1 10. júní, 2024 – 14. júní, 2024 10. júní, 2024 14. júní, 2024 09:00-12:00 Dagur Pétursson Pinos og Guðbrandur Magnússon 35.000 kr.
1012MA2 18. júní, 2024 – 21. júní, 2024 18. júní, 2024 21. júní, 2024 09:00-12:00 Dagur Pétursson Pinos og Guðbrandur Magnússon 35.000 kr.
1012MA3 12. ágúst, 2024 – 16. ágúst, 2024 12. ágúst, 2024 16. ágúst, 2024 09:00-12:00 Dagur Pétursson Pinos og Guðbrandur Magnússon 35.000 kr.