Á námskeiðinu kanna nemendur skúlptúrinn í ýmsu samhengi, bæði inni og úti og munu vinna með fjölbreyttan efnivið eins og pappír, tré og aðra fundna hluti sem þau munu safna í vettvangsferðum. Gerðar verða tilraunir og fá nemendur tækifæri til að láta ímyndunaraflið ráða för.
Markmið námskeiðsins er að efla sköpunargleði og sjálfstraust til listsköpunar og stuðla að gleði og jákvæðri upplifun af myndlist.