Nemendur kafa í hugmyndina um skrímsli og furðuverur, bæði þau sem við þekkjum úr sögum og ævintýrum, og einnig þau sem við ímyndum okkur sjálf.
Við vinnum með okkar eigin furðudýr í ýmsa miðla, gerum klippimynd, teikningar, prentverk og að lokum sköpum við okkar furðudýr í þrívíðu formi. Við tökum einn dag í útiveru, þar sem við söfnum efnivið og kíkjum á listasafn.
Markmið námskeiðsins er að efla sköpunargleði og sjálfstraust til listsköpunar og stuðla að gleði og jákvæðri upplifun af myndlist.