Nemendur vinna með hugtökin náttúra og umhverfi og velta fyrir sér hvað sé „náttúrulegt“ og hvað sé manngert?
Farið verður í gönguferðir um nærumhverfið og teiknað úti. Hlutir úr náttúrunni, svo sem steinar, skeljar, gróður, fuglar og fjaðrir, verða rannsakaðir, teiknaðir, málaðir og mótaðir með blýöntum, bleki, vatnslitum, þekjulitum og pappamassa.
Markmið námskeiðsins er að efla sköpunargleði og sjálfstraust til listsköpunar og stuðla að gleði og jákvæðri upplifun af myndlist.