6-9 ára: Málun og blönduð tækni

Á þessu fjölbreytta námskeiði er unnið með ýmsar ólíkar aðferðir í málun og gerðar tilraunir með blandaða tækni. Nemendur vinna með náttúru og landslag í víðum skilning (borgarlandslag, náttúrulandslag, tilfinningarlandslag) og ýmsir listamenn kynntir.

Það verður málað, teiknað og skapað úti og inni. Hefðbundnar aðferðir verða rannsakaðar og nýttar á nýjan hátt.

Markmið námskeiðsins er að efla sköpunargleði og sjálfstraust til listsköpunar og stuðla að gleði og jákvæðri upplifun af myndlist.

Efniskaup: Allt efni innifalið.
Hámarksfjöldi nemenda: 10 í hverjum námskeiðshóp
Kaffitími:

Ætlast er til að börnin hafi með sér einhvern léttan bita / hollt nesti, en fari ekki að kaupa í kaffitímanum. Athygli er vakin á því að Myndlistaskólinn er hnetufrír og því má ekki taka með sér nesti sem inniheldur hnetur.

MYNDL RVK 22 NAMSKEID 02453

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Tímasetning Kennari Verð Skráning
69S1 15. júní, 2026 – 19. júní, 2026 15. júní, 2026 19. júní, 2026 09:00-12:00 Lovísa Lóa Sigurðardóttir 29.000 kr.
69S5 22. júní, 2026 – 26. júní, 2026 22. júní, 2026 26. júní, 2026 09:00-12:00 Lovísa Lóa Sigurðardóttir 34.000 kr.
69S9 10. ágúst, 2026 – 14. ágúst, 2026 10. ágúst, 2026 14. ágúst, 2026 09:00-12:00 Lovísa Lóa Sigurðardóttir 34.000 kr.