10-12 ára: Töfrar Skúlptúrsins

Á námskeiðinu kanna nemendur skúlptúrinn í ýmsu samhengi, bæði inni og úti og munu vinna með fjölbreyttan efnivið eins og pappír, tré og aðra fundna hluti sem þau munu safna í vettvangsferðum. Gerðar verða tilraunir og fá nemendur tækifæri til að láta ímyndunaraflið ráða för.

Markmið námskeiðsins er að efla sköpunargleði og sjálfstraust til listsköpunar og stuðla að gleði og jákvæðri upplifun af myndlist.

Efniskaup: Allt efni innifalið.
Hámarksfjöldi nemenda: 12 í námskeiðshóp
Kaffitími:

Ætlast er til að börnin hafi með sér einhvern léttan bita / hollt nesti, en fari ekki að kaupa í kaffitímanum. Athygli er vakin á því að Myndlistaskólinn er hnetufrír og því má ekki taka með sér nesti sem inniheldur hnetur.

10 12 Ára Eitt Og Annað Guðrún Hrönn Ragnarsdóttir37

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Tímasetning Kennari Verð Skráning
1012S2 15. júní, 2026 – 19. júní, 2026 15. júní, 2026 19. júní, 2026 09:00-12:00 Hlökk Þrastardóttir 29.000 kr.