10-12 ára: Náttúra, umhverfi og mynd

Nemendur vinna með hugtökin náttúra og umhverfi og velta fyrir sér hvað sé „náttúrulegt“ og hvað sé manngert?

Farið verður í gönguferðir um nærumhverfið og teiknað úti. Hlutir úr náttúrunni, svo sem steinar, skeljar, gróður, fuglar og fjaðrir, verða rannsakaðir, teiknaðir, málaðir og mótaðir með blýöntum, bleki, vatnslitum, þekjulitum og pappamassa.

Markmið námskeiðsins er að efla sköpunargleði og sjálfstraust til listsköpunar og stuðla að gleði og jákvæðri upplifun af myndlist.

Efniskaup: Allt efni innifalið.
Hámarksfjöldi nemenda: 12 í hverjum námskeiðshóp
Kaffitími:

Ætlast er til að börnin hafi með sér einhvern léttan bita / hollt nesti, en fari ekki að kaupa í kaffitímanum. Athygli er vakin á því að Myndlistaskólinn er hnetufrír og því má ekki taka með sér nesti sem inniheldur hnetur.

10 12 Ára Draumar Og Veruleiki 2

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Tímasetning Kennari Verð Skráning
1012S5 22. júní, 2026 – 26. júní, 2026 22. júní, 2026 26. júní, 2026 09:00-12:00 Rannveig Jónsdóttir 34.000 kr.
1012S8 10. ágúst, 2026 – 14. ágúst, 2026 10. ágúst, 2026 14. ágúst, 2026 09:00-12:00 Rannveig Jónsdóttir 34.000 kr.