10-12 ára: Myndasögur og manga

Á þessu námskeiði læra nemendur að teikna myndasögur.

Farið verður yfir grunnatriði í teikningu persóna og bakgrunna og fjallað verður um hvernig myndasögur eru uppbyggðar. Lögð er áhersla á frelsi nemandans til að skapa myndasögu sem hentar þeirra áhugasviði, t.d í japönskum mangastíl eða hefðbundnari teiknimyndastíl.

Þegar námskeiðinu lýkur ætti nemandinn að hafa lokið við tveggja til þriggja blaðsíðna langa myndasögu, litað hana og lokið við með blekpenna.

Námskeiðið hentar fyrir byrjendur sem og lengra komna.

Efniskaup: Allt efni innifalið.
Hámarksfjöldi nemenda: 16 í hverjum námskeiðshóp
Kaffitími:

Ætlast er til að börnin hafi með sér einhvern léttan bita / hollt nesti, en fari ekki að kaupa í kaffitímanum. Athygli er vakin á því að Myndlistaskólinn er hnetufrír og því má ekki taka með sér nesti sem inniheldur hnetur.

Myndasögur Stelpur

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Tímasetning Kennari Verð Skráning
1012S1 15. júní, 2026 – 19. júní, 2026 15. júní, 2026 19. júní, 2026 09:00-12:00 Guðbrandur Magnússon 29.000 kr.
1012S2 22. júní, 2026 – 26. júní, 2026 22. júní, 2026 26. júní, 2026 09:00-12:00 Guðbrandur Magnússon 34.000 kr.
1012S7 10. ágúst, 2026 – 14. ágúst, 2026 10. ágúst, 2026 14. ágúst, 2026 09:00-12:00 Guðbrandur Magnússon 34.000 kr.