Útrás fyrir handóða: Risoprent

Á námskeiðinu munu þátttakendur prófa sig áfram með svokallað rísóprent. Sú prenttækni er á milli þess að vera hliðræn og stafræn. Með ljósritun er myndefni flutt yfir á stensil sem síðan vefst utan um prenttromlu sem liturinn þrýstist í gegnum. Þetta ferli fer fram inni í eiginlegum rísóprentara, sem líkist einna helst gamalli ljósritunarvél.

Þessi prenttækni hefur verið vinsæl meðal hönnuða og myndlistarmanna síðastliðin ár en hún á uppruna sinn á áttunda áratug síðustu aldar. Á námskeiðinu fá þátttakendur tækifæri til að kanna ólíka mögulega þessarar prenttækni með aðstoð leiðbeinanda.

Starfandi hönnuðir og myndlistarmenn eru sérstaklega hvattir til að sækja námskeiðið, sem þó er opið öllum, bæði byrjendum og lengra komnum.

Námskeiðið verður á laugardags- og sunnudagsmorgni, helgina 28. og 29. júní.

Námslok miðast við 80% mætingu. Kennslan fer fram á ensku.

Ljósmyndin er af prentverki eftir kennara námskeiðsins, Jösu Böku, og er í eigu listamannsins.

Efniskaup: Allt efnis sem þarf til þátttöku á námskeiðinu er innifalið í námskeiðisgjaldi: fimm masterar/stenslar, prentlitur innan hóflegra marka og ólíkar tegundir af vönduðum pappír. Vilji þátttakendur gera umfangsmeiri prentverk gefst þeim kostur á að greiða aukalega fyrir það umframefni sem þeir þura.
Hámarksfjöldi nemenda: 12
Jasabaka riso

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Tímasetning Kennari Verð Skráning
N0628 28. júní, 2025 – 29. júní, 2025 28. júní, 2025 29. júní, 2025 10:15-13:30 Jasa Baka 37.000 kr.