Módelteikning: Aflagalína

Á námskeiðinu Módelteikning: Aflagalína verður teiknað eftir módeli á fjölbreyttan og frjálslegan hátt. Námskeiðið nýtist best þeim sem hafa teiknað módel áður. Teiknað verður með kolablýöntum, tússi, bleki og öðrum áhöldum. Leiðbeinandi gefur hópnum í heild ákveðin fyrirmæli áður en hafist er handa við að teikna hverju sinni og opnar um leið á ný kynni við bæði mannslíkamann og teikninguna.

Sem fyrr segir, er námskeiðið sérstaklega ætlað þeim sem hafa teiknað módel áður og búa yfir grunnþekkingu í teikningu.

Námskeiðið verður á mánudags-, þirðjudags- og miðvikudagskvöldi dagana 19. til 21. maí.

Námslok miðast við 80% mætingu. Kennt verður á íslensku.

Efniskaup: Þátttakendur eru hvattir til að hafa með sér þau teikniáhöld sem þeir eru vanir að nota ásamt kolablýanti. Önnur áhöld og efniviður er innifalinn í námskeiðisgjaldi.
Hámarksfjöldi nemenda: 12
IMG 2574

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Tímasetning Kennari Verð Skráning
N0519 19. maí, 2025 – 21. maí, 2025 19. maí, 2025 21. maí, 2025 17:00-20:00 Kristín Gunnlaugsdóttir 43.000 kr.